Lovly without the E !!

Saturday, November 13, 2010

Hellcats

Ég ákvað að kíkja á einn þátt af Hellcats í viðbót eftir að ég las á perezhilton að þeir voru að fá svo hátt ratings í bandaríkjunum, þættirnir urði greinilega akkúrat góðir eftir þáttinn sem ég hætti að horfá. Núna finnst mér þetta æðislegir þættir, get ekki beðið eftir næsta :D

Wednesday, November 10, 2010

Another tv episode blog

I can so swear it! Btw þetta er spoilerblogg, ekki lesa áfram nema að þú ert að fylgjast með Gossip Girl, Glee og 90210 á netinu og komin á sama stað og ég ;) Það er svo langt síðan ég bloggaði síðast og ógeðslega mikið búið að gerast í sjónvarpsdagskránni minni, ég nenni varla að tala um það.... eða jú. Jersey Shore er búið endaði greinilega ekki með nógu miklum bang þar sem ég man eiginlega ekki hvernig það endaði, Angelina beilaði 3 þáttum fyrir loka þáttinn, eða var það 2, ég var eiginlega ekkert það interested eftir að hún fór, eins ömurleg og hún var þá gerði hún hlutina áhugaverða... pirrandi en áhugaverða. Ég er hætt að horfa á Hellcats, ég horfði á fyrstu 5 þættina í von um að þetta myndi verða rosa spennó og gaman en það bara gerðist ekki.

Ég get ekki hugsað um neina þrjá stafi sem eru meira viðeigandi en O.M.G. Gossip Girl! Geeeekkkkk Blair og Chuck omgooosssh ég er eins og algjör smápíka en ég er að ýminda mér að þú blogglesandi hafir verið að klára að horfa á þáttinn og ert líka að fríka út og vantar útrás líka! Ég er ekkert smá happy með þetta, ég eeelskaði endan á nýjasta þættinum "Juliet doesn't live here anymore". Ég held að ég sé að fýla Vanessu, Juliet og Jenny teamið sem er að myndast. Ég samt fýla Juliet, ég var að vona að hún myndi hætta að vera vond. Mér er alveg sama um Serena/Nate/Dan.... samt frekar Dan en Nate, en whatever, er orðin leið á Serenu. Var ég sú eina sem var sammála Vanessu að Serena kemst upp með allt og það er komin tími að hún væri knocked down a peg.

90210, ég horfi alltaf á þessa þætti, en mér finnst þeir eiginlega alltaf semi asnalegir. Það er ekkert mjög djúsí skemmtilegt að gerast. Adrianna eitthvað að vera fræg og vondur kall að kúga hana og hún an hunsa Navid og Navid að næstum kyssa Silver. Who gives a damn? Silver er orðin boring líka, þótt hún var fyndin í porn star gervinu sínu. Mér er alveg sama um Navid og pabba hans, mér er alveg sama um Annie og gaurinn hennar, alveg sama um Liam og töskustelpuna og mér er alveg sama um foreldra Annie og Dixon. Spurning hvaða storyline Naomi fær núna þegar þetta mr Cannon dæmi er búið. Ég vona að Dixon hættir að vera hálfviti og fattar að það var bara algjörlega honum að kenna að Ivy svaf hjá Oscar. Það var ekki eins og þau voru að rífast og hættu saman í bræði. Hann sagí blákallt við hana að hann væri hrifinn af annari stelpu og þetta gerðist, deal with it, it's your fault ass!!

O.M.GLEE I'M GLEEKING OUT! haha not really samt, nýja sería á Glee eru meira bara lög en söguþráður. Ég fýla hvernig þau tókust á við einelti samkynhneigðra í nýjasta þættinum. Mér finnst ennþá Tina og Mike Chang sætust í heimi... það er eiginlega samt mest því að ég er ástfangin af Mike Chang..... Puck og Artie eru skemmtilegir saman. Ég tók ekki neitt eftir Rachel og Finn í nýja þættinum sem er mjög gott. Er svona semi sama um Quinn og Sam. ÉG VIL BRITTANY OG ARTIE SAMAN!!

Anyhoo ég fékk útrás, það nennir enginn að hlusta á mig tala um þætti hér á heimilinu, þarf að fá útrás einhverstaðar. Sæli á samt örugglega eftir að lesa þetta blogg.... ??