Rannsóknarlögreglan í Kringlunni
Ég var búin að lofa Ingunni að ég myndi skrifa um hana í næstu bloggfærslu en ég er eiginlega með of djúsí skúp til þess að geyma, ég vona að hún fyrirgefi mér og finnst kannski bara heiður að vera nefnd á nafn hérna.
Ég vildi svoldið ræða undalegt mál sem hefur verið í gangi seinastu mánuðina. Þannig er mál með vexti að ég sé eiginmann vinkonu minnar í kringlunni öðru hvoru og ætla alltaf að heilsa honum þegar ég tek eftir því að hann er með einhverri allt annari fjölskyldu, þá sný ég við í flýti og labba hratt í burtu... Gööövöööð þetta var ekkert hann... vandræðalegt... En ég get svo svarið það þessi maður er nákvæmlega eins og hann, hvernig hann lítur út, klæðir sig og hagar sér þannig að ég fór að hugsa, er maðurinn kannski að lifa tvöföldu lífi og á bara einhverja aðra familíu útí bæ? sem gera ekkert annað en að hanga í Kringlunni?
Nema hvað í dag sit ég á stjörnutorgi alein að éta vonda serranoinn minn, þá tek ég eftir því að hann situr þarna á næsta borði og viti menn með hinni fjölskyldunni OG ÞAU ERU AÐ FARA! Ég var ekki lengi að hugsa og brá á það ráð að ellta þau og ætlaði svo sannalega að confronta gaurinn.... en svo þegar ég kom nær þá tók ég eftir því að gaurinn er ekki NEITT eins og kallinn hennar vinkonu minnar, bara ekki baun....wtf :S en ég reyndi að taka mynd af honum í laumi til að sýna vinkonu minni tvífara eiginmanns hennar í fjarlægð, en náði bara blurry mynd af konunni hans og barni :S kann ekki alveg við að pósta þeirri mynd á bloggið :S
Btw ég held að maður verði nett brjálaður í hausnum að halda út blogg .....


0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home