Lovly without the E !!

Sunday, September 26, 2010

Grumpy old person


Jesus Christ hvað ég er orðin gömul. Fór í mataboð/afmæli í gær, borðaðu rosalega góðan mat og sötraði vín með matnum, allir vöru orðnir svoldið fullir og mjög góður stemmari fyrir því að kíkja niður í miðbæ Reykjavík. Ég hef ekki farið á djammið í svoldin tíma og var mjög spennt fyrir því að kíkja niðrí bæ og fara að dansa. Ég var meira að segja búin að taka mér smá gömlu konu lúr um daginn svo að ég myndi vera hress um kvöldið en allt varð fyrir engu því að á miðnætti byrjaði ég að vera sibbin, ég ákvað að hætta þessari vitleysu og fá mér bara meira að drekka, klukkan eitt var ég farin að reyna að redda mér fari heim, ég meeeikaði ekki að vera vakandi svona lengi, og ég gat ekki hugsað mér að fara niðrí bæ. Þannig að ég dró fulla kallinn minn með mér heim að sofa.... þegar ég kom heim var tannburstinn minn ofan í klósettinu, mjög mikið mystery með það, Ársæll sver fyrir því að hafa ekki hent honum í klósettið..... já og btw á föstudaginn var ég með rúllur og klút yfir hárinu eins og einhver miðaldra fiftís kelling og fór að leggja mig í sófanum þegar við vorum með gesti fram á nótt að horfa á myndir....

uuugghhh

0 Comments:

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home