Crazy girlies
Vaknaði í morgun, burstaði á mér tennurnar og þreif á mér andlitið. Setti á mig grímuna, krullaði á mér hárið og fór í fötin sem ég hafði vandlega valið mér kvöldið áður, eyddi svo svolitlum tíma í að ákveða hvernig ég ætti að skarta mig upp. Var í svaka gellu módi þegar ég steig útum dyrnar.Mætti svo í vinnuna, horfði á mig í speglinum og gagnrýndi hvern einasta hlut við sjálfan mig sem ég var að eyða tíma í í morgun...... Hvernig nennir fólk að vera stelpur?!

0 Comments:
Post a Comment
Subscribe to Post Comments [Atom]
<< Home