Úff

Æjj vá bara jólin að koma, hvar er jólastuðið?! Ég eyddi öllu laugardagskvöldinu í það að taka til og skreyta og svo er ég búin að vera að baka og skreyta frammi og nei bara ekkert stuð :S skil þetta ekki!! Reyndar held ég að þetta sé mikið útaf rosalegu stressi útaf skólanum! Það er svo mikið að gera, ég er í prófum og er að reyna að klára þessa vinnubók jeez hvað ég er ekki að fýla þessa vinnubók!! Myndardagarnir eru búnir, ætla að vona að mér gekk vel, þrátt fyrir brjálað stress, ég var á tímabili næstum því farin að gráta og ældi smá uppí mig útaf stressi! Guð !! Bara ef að ég fell í skólanum eru bara allir draumarnir brotnir og 310 þúsund krónur farnar í vaskin, gaman gaman! Allavega í dag fór ég í ísland í bítið, mætti klukkan 6:30 geggjað stuð!! Fylgdist með sminkinu, örugglega geðveikt gaman að vera sminka þarna! Á morgun er gestakennari um markaðsetningu og svo miðvikudaginn er æfing fyrir próf, fimmtudaginn er próf í brúðarförðun og skil á vinnubók, mánudaginn er æfing fyrir próf og þriðjudaginn er próf í kvöldförðun, miðvikudaginn æfing fyrir próf, fimmtudaginn próf, frjálst val! Svo eru bara litlu jólin og útskrift!
Allavega ég er alveg búin að losa mig við vírusinn og búin að setja aftur upp netið í tölvunni minni, nú er ég bara að fara að installa office pakkanum og byrja að pikka inn einhverjar glósur, btw var að fá prentara, geggjað ánægð með það :D:D
