Lovly without the E !!

Friday, October 27, 2006

Count it !

Jesssörrrííííbbbbooooobbb

Það er fkn vont veður sem þýðir bara eitt, ég er komin í jólastuð! Ég er búin að vera að reyna að berjast við það, það er glæpsamlegt að vera komin í stuð svona snemma því að þá gerist bara eitt, þú verður dottinn úr stuði þegar nær dregur, ég held að það sé svona kvóti, þú mátt bara vera í stuði í ákveðið marga daga and then you're done ! Ég hlakka til þegar við skreitum, hlakka til að fara að baka piparkökur, hlakka til að kaupa dagatalakerti og kveikja á því og gleyma að slökkva á því þannig að það brennir alltof marga daga, hlakka til þegar maður setur upp aðventukransinn og kveikir á aðventukertunum, þegar við kaupum jólatréið og finnum jólatré á fysta staðnum sem að við förum á nema að mér finnst það svo ótrúlegt að ég neyði alla til að fara á allavega 2 aðrar jólatréasölur, ég hlakka til þegar maður er komin með uppí kok á öllum jólalögunum, ég hlakka til þegar við finnum ekki Mahaliu Jackson diskinn á þorláksmessu því að Svaný hefur sett hann einhverstaðar á góðan stað og kennir mömmu um, ég hlakka til þegar allir fara að rífast á þorláksmessu og verða pirraðir nema ég því að ég er að reyna að hafa jólaskap og svo hlakkar mér auðvitað til að vera plötuð í það að skræla kartöflur á aðfangadag í fínu fötunum mínum og að éta jólamatinn, opna pakka og leika sér með allt dótið sem að maður fékk og borða nammi eftir að gestirnir eru farnir, eða núna, horfa á allar dvd myndirnar :p

Djö nú er ég náttúrulega í miklu meira jólastuði :(

5 Comments:

At 10/27/2006 3:45 PM , Anonymous Anonymous said...

HEY ÞAÐ ER ENNÞÁ SUMAR KONA!?!?!?!?

 
At 10/28/2006 6:25 PM , Anonymous Anonymous said...

OMG nú er ég komin í jólaskap!!!

 
At 10/30/2006 2:46 PM , Blogger Lovy said...

hihi

 
At 10/31/2006 2:30 PM , Anonymous Anonymous said...

Omg ég er svo komin í jólaskap eftir þetta!!! ég ætla að lesa þessa færslu aftur!!!

 
At 11/01/2006 2:09 PM , Blogger Lovy said...

hihi silly

 

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home