Monday, October 30, 2006
Friday, October 27, 2006
Count it !
Jesssörrrííííbbbbooooobbb
Það er fkn vont veður sem þýðir bara eitt, ég er komin í jólastuð! Ég er búin að vera að reyna að berjast við það, það er glæpsamlegt að vera komin í stuð svona snemma því að þá gerist bara eitt, þú verður dottinn úr stuði þegar nær dregur, ég held að það sé svona kvóti, þú mátt bara vera í stuði í ákveðið marga daga and then you're done ! Ég hlakka til þegar við skreitum, hlakka til að fara að baka piparkökur, hlakka til að kaupa dagatalakerti og kveikja á því og gleyma að slökkva á því þannig að það brennir alltof marga daga, hlakka til þegar maður setur upp aðventukransinn og kveikir á aðventukertunum, þegar við kaupum jólatréið og finnum jólatré á fysta staðnum sem að við förum á nema að mér finnst það svo ótrúlegt að ég neyði alla til að fara á allavega 2 aðrar jólatréasölur, ég hlakka til þegar maður er komin með uppí kok á öllum jólalögunum, ég hlakka til þegar við finnum ekki Mahaliu Jackson diskinn á þorláksmessu því að Svaný hefur sett hann einhverstaðar á góðan stað og kennir mömmu um, ég hlakka til þegar allir fara að rífast á þorláksmessu og verða pirraðir nema ég því að ég er að reyna að hafa jólaskap og svo hlakkar mér auðvitað til að vera plötuð í það að skræla kartöflur á aðfangadag í fínu fötunum mínum og að éta jólamatinn, opna pakka og leika sér með allt dótið sem að maður fékk og borða nammi eftir að gestirnir eru farnir, eða núna, horfa á allar dvd myndirnar :p
Djö nú er ég náttúrulega í miklu meira jólastuði :(
Saturday, October 21, 2006
GMG

Rosalega er ég löt að blogga, i know that's true :p anyhoo förðunarkeppnin er á morgun... ég er geðveikt nervous því að ég er ekki ennþá búin að ákveða hvað ég ætla að gera... :S Var að koma úr vinnunni.... það var ekkert sérstakt, var að vinna 19-3:30 bleeeeehhhh.... fullt fólk er boring þegar maður er ekki fullur sjálfur. En það helsta í fréttum er það að ég var að kaupa nýja tölvu eða ég og Maggi, geggjaða Fujitsu Siemens tölvu og 22"VeiwSonic flatskjá !! og geggjað hljóðkerfi :D Þannig að það á eftir að vera mikið meir af bloggum í framtíðinni :D:D Allavega allir koma að kíkja á mig í laugardalshöllinni klukkan 12-13:30 hihi jæja ég er að spæla að fara að lúlla mér, big day tomorrow gn

