Lovly without the E !!

Friday, September 08, 2006

Gaman


Þegar svona skemmtilegt fólk eins og Jóhanna og Sunneva, taka 3 mínútur úr lífi sínu til þess að lesa blogg og commenta þá fær maður innblástur um að blogga meira... þótt maður hefur lítið að segja.

Ég veit ekki hvað er í gangi með mig, ég held að ég fékk einhvern kipp þegar ég fór að hugsa að ein vinkona mín er nú þegar komin með barn og það fer ekki að líða a löngu þegar fleiri fara að vera með börn og kalla, þar á meðal ég !! Eina sem að ég hugsa um þessa dagana er að djamma !! og ég ætla að fá mér tattoo, 3 tattoo, gat ekki ákveðið hvernig tattoo og hvar, það voru 3 staðir sem að ég var að pæla í, þannig að ég hef ákveðið að fá mér bara á alla... ohhh ég stöðvaði bloggflæðið með að stoppa til að laga kaffi !! aaaargg.. Gunni er að spila á gítar og syngja niðri það er notó, er að spila creep, smá blogg tónlist.

Anyhoo ég er svo á leiðinni að drulla mér að flytja út!! Þegar ég er búin í snyrtiskólanum er ég gone! Ætla leigja mér litla crappy íbúð einhverstaðar á crappy stað í miðbænum þar sem dópistar hanga fyrir utan en mér er alveg sama því að leigjan er ódýr og bjóða öllum í partý á hverjum degi !! eeehhh allavega svona aðra hvora helgi :p Ok ég er að spá í að fara aftur í bólið og horfa á sex and the city, ég var vakin allt of snemma en mjög skemmtilega af Magga :p

1 Comments:

At 9/08/2006 10:50 PM , Anonymous Anonymous said...

Ég held ég sé nú frekar sorgleg heldur en skemmtileg, ég flakka milli bloggsíðna all the time :o) En mér finnst alltaf gaman að lesa svona heilsteypt blogg... :o)

 

Post a Comment

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Home