Lovly without the E !!

Saturday, November 13, 2010

Hellcats

Ég ákvað að kíkja á einn þátt af Hellcats í viðbót eftir að ég las á perezhilton að þeir voru að fá svo hátt ratings í bandaríkjunum, þættirnir urði greinilega akkúrat góðir eftir þáttinn sem ég hætti að horfá. Núna finnst mér þetta æðislegir þættir, get ekki beðið eftir næsta :D

Wednesday, November 10, 2010

Another tv episode blog

I can so swear it! Btw þetta er spoilerblogg, ekki lesa áfram nema að þú ert að fylgjast með Gossip Girl, Glee og 90210 á netinu og komin á sama stað og ég ;) Það er svo langt síðan ég bloggaði síðast og ógeðslega mikið búið að gerast í sjónvarpsdagskránni minni, ég nenni varla að tala um það.... eða jú. Jersey Shore er búið endaði greinilega ekki með nógu miklum bang þar sem ég man eiginlega ekki hvernig það endaði, Angelina beilaði 3 þáttum fyrir loka þáttinn, eða var það 2, ég var eiginlega ekkert það interested eftir að hún fór, eins ömurleg og hún var þá gerði hún hlutina áhugaverða... pirrandi en áhugaverða. Ég er hætt að horfa á Hellcats, ég horfði á fyrstu 5 þættina í von um að þetta myndi verða rosa spennó og gaman en það bara gerðist ekki.

Ég get ekki hugsað um neina þrjá stafi sem eru meira viðeigandi en O.M.G. Gossip Girl! Geeeekkkkk Blair og Chuck omgooosssh ég er eins og algjör smápíka en ég er að ýminda mér að þú blogglesandi hafir verið að klára að horfa á þáttinn og ert líka að fríka út og vantar útrás líka! Ég er ekkert smá happy með þetta, ég eeelskaði endan á nýjasta þættinum "Juliet doesn't live here anymore". Ég held að ég sé að fýla Vanessu, Juliet og Jenny teamið sem er að myndast. Ég samt fýla Juliet, ég var að vona að hún myndi hætta að vera vond. Mér er alveg sama um Serena/Nate/Dan.... samt frekar Dan en Nate, en whatever, er orðin leið á Serenu. Var ég sú eina sem var sammála Vanessu að Serena kemst upp með allt og það er komin tími að hún væri knocked down a peg.

90210, ég horfi alltaf á þessa þætti, en mér finnst þeir eiginlega alltaf semi asnalegir. Það er ekkert mjög djúsí skemmtilegt að gerast. Adrianna eitthvað að vera fræg og vondur kall að kúga hana og hún an hunsa Navid og Navid að næstum kyssa Silver. Who gives a damn? Silver er orðin boring líka, þótt hún var fyndin í porn star gervinu sínu. Mér er alveg sama um Navid og pabba hans, mér er alveg sama um Annie og gaurinn hennar, alveg sama um Liam og töskustelpuna og mér er alveg sama um foreldra Annie og Dixon. Spurning hvaða storyline Naomi fær núna þegar þetta mr Cannon dæmi er búið. Ég vona að Dixon hættir að vera hálfviti og fattar að það var bara algjörlega honum að kenna að Ivy svaf hjá Oscar. Það var ekki eins og þau voru að rífast og hættu saman í bræði. Hann sagí blákallt við hana að hann væri hrifinn af annari stelpu og þetta gerðist, deal with it, it's your fault ass!!

O.M.GLEE I'M GLEEKING OUT! haha not really samt, nýja sería á Glee eru meira bara lög en söguþráður. Ég fýla hvernig þau tókust á við einelti samkynhneigðra í nýjasta þættinum. Mér finnst ennþá Tina og Mike Chang sætust í heimi... það er eiginlega samt mest því að ég er ástfangin af Mike Chang..... Puck og Artie eru skemmtilegir saman. Ég tók ekki neitt eftir Rachel og Finn í nýja þættinum sem er mjög gott. Er svona semi sama um Quinn og Sam. ÉG VIL BRITTANY OG ARTIE SAMAN!!

Anyhoo ég fékk útrás, það nennir enginn að hlusta á mig tala um þætti hér á heimilinu, þarf að fá útrás einhverstaðar. Sæli á samt örugglega eftir að lesa þetta blogg.... ??

Sunday, September 26, 2010

Weezer - The Good Life

Grumpy old person


Jesus Christ hvað ég er orðin gömul. Fór í mataboð/afmæli í gær, borðaðu rosalega góðan mat og sötraði vín með matnum, allir vöru orðnir svoldið fullir og mjög góður stemmari fyrir því að kíkja niður í miðbæ Reykjavík. Ég hef ekki farið á djammið í svoldin tíma og var mjög spennt fyrir því að kíkja niðrí bæ og fara að dansa. Ég var meira að segja búin að taka mér smá gömlu konu lúr um daginn svo að ég myndi vera hress um kvöldið en allt varð fyrir engu því að á miðnætti byrjaði ég að vera sibbin, ég ákvað að hætta þessari vitleysu og fá mér bara meira að drekka, klukkan eitt var ég farin að reyna að redda mér fari heim, ég meeeikaði ekki að vera vakandi svona lengi, og ég gat ekki hugsað mér að fara niðrí bæ. Þannig að ég dró fulla kallinn minn með mér heim að sofa.... þegar ég kom heim var tannburstinn minn ofan í klósettinu, mjög mikið mystery með það, Ársæll sver fyrir því að hafa ekki hent honum í klósettið..... já og btw á föstudaginn var ég með rúllur og klút yfir hárinu eins og einhver miðaldra fiftís kelling og fór að leggja mig í sófanum þegar við vorum með gesti fram á nótt að horfa á myndir....

uuugghhh

Saturday, September 25, 2010

Fegurð


Svo næs að leggja bílnum aðeins lengra í burtu frá heimilinu mínu og labba meðfram fjörunni. Fersk fjörulykt í loftinu, svo fallegt..... kunni ekki alveg jafn mikið að meta þetta morguninn eftir þegar ég vaknaði of seint og bílinn var ALLTOF langt frá fokking heimilinu mínu, fokkings fjara og fegurð hennar!!

Wednesday, September 22, 2010

I'm gleeking out!!!!

Spoilers!

Oh my gosh! NÝJA SERÍAN AF GLEEEEEEE!!! Fyrsti þáttur er s.s komin, getur horft á hann hér http://www.megavideo.com/?v=KPL6AGJS . Ok s.s ekkert hefur breyst fyrir Glee klúbbinn, þau eru ennþá lúserar. Quinn verður head cheerleader aftur, Santana er ekki happy með það. Það er kominn nýr football þjálfari sem er kona og Sue og Will joina forces til að reyna að bola hana í burtu. Finn er hennt úr football liðinu, einhver nýr gaur er quarterback hann getur sungið en vill ekki vera í glee club því það er lame. Einhver stelpa frá filipseyjum ætlar að joina en Rachel bolar hana í burtu og allir eru reiðir útí Rachel ooog ó já Tina dömpaði Artie fyrir Mike Chang :o suuuuucsk, samt ekki, Tina og Mike Chang eru sæt saman, ekki bara því þau eru bæði asian heldur því að hann virðist vera góður við hana. Artie var alltaf pínu asni við hana en hann er bara svo mikið krúhútt. 

Ég er spennt að sjá hvernig Quinn/Santana thingið spilast út. Er að vona að Finn og Rachel virka saman, vildi að hann væri betri við hana, bara svona litlir hlutir eins og þegar hann vissi að hún hafði áhyggjur af stelpunni frá Filipseyjum hefði hann átt að halda utan um hana og líka asnalegt þegar hann sagði að hann ætlaði ekki að dömpa henni því að hann var ekki lengur quarterback og er bara Glee loser, gat hann ekki sagt ég á aldrei eftir að dömpa þér því ég elska þig? Mér er eiginlega sama hvað verður um Sue og Will því að það er alltaf awesome alveg sama hvað gerist. og já fannst geðveikt asnalegt að Puck fór í ófrjósemisaðgerð, common hann er bara 17 or sum, hann á pottþétt eftir að vilja börn í framtíðinni, er þetta leyft fyrir svona unga? 

Anyhoo er einhver að horfa með mér á þetta eða eru allir að bíða eftir að þetta verður sýnt í sjónvarpi?

Tuesday, September 21, 2010

ó mí ó mæ!

Spoiler Alert!

Woooow mér fannst síðustu 2 seríur af gossip girl ekkert spes, þriðja sería var eiginlega frekar boring en ég hélt áfram að horfa, rosalega held ég að fjórða sería verði öflug. Ég er búin að horfa á 2 þætti. Fyrsti þátturinn í nýju seríunni byrjar þannig að Blair og Serena eru í París, Serena að deita og skemmta sér og reyna að ákveða hvort hún sé hrifnari af Nate eða Dan og Blair að reyna að jafna sig á Chuck og upplifa rómantískt ævintýri. Dan er að struggla við að ala um ungabarn sem að hann átti með Georginu og var að halda því leyndi frá öllum og Georgina er eitthvað gruggug eins og alltaf, var alltaf að tala á rússnesnku í síman og stakk af strax og Dan skrifaði undir pappírana um að hann væri pabbinn. Nate er að vera slut og hittir gelluna sem lék í nýja Melrose Place og þau verða vinir, en hún er eitthvað gruggug og er örugglega að reyna að gera eitthvað af sér en hann veit það ekki ennþá. Lilly heldur að Chuck sé dáinn þar sem að lík skolast upp í París með veskinu hans og vegabréfi í vasanum. Chuck hinsvegar var bjargað af einhverri gellu og hann segir henni að hann heitir Henry og þau eru ástfangin núna og fluttu til París. Og já no sign of Jenny yet, fjúffff!

Anyhooo sjitt motherfuck hvað ég grét í þætti númer 2! Ætla ekki að spoilera eitthvað frekar, just watch it! Ég er ennþá að jafna mig!

You motherchucker!

Gossip girl er byrjað aftur.....

og ég er komin með net í nýju íbúðina.... SCORE

Monday, September 13, 2010

Dí hvað ég er sár


Snooki! Hvað hefuru gert?! hvar er Snooki poofið?! Mér finnst þú bara alls ekki eins sæt svona þú ert bara eins og hálviti! Ég vil poofið aftur!! 

Fegurð

Sjáiði hvað kærasti minn var einusinni hárprúður og hann er ljóshærður þvílíkt fyndið

Sunday, September 12, 2010

Ég segi það nú

Saturday, September 11, 2010

Our House is a very very very fine house

Ég trúi ekki að ég sé í vinnunni á svona fallegum stað.... er reyndar ekki alveg eins sólríkt hjá mér núna en samt alveg svipað fallegt.


Ég sit hérna í horninu, þið sjáið kannski hvítt afgreiðsluborð þarna og er að bíða eftir þvottavélinni, allir gestir eru farnir út að skoða sig um eða eru sofandi þannig að ég ákvað að henda inn einu bloggi áður en ég finn mér kannski bara eitthvað meira til þess að þrífa. Ef ég væri í skóla þá myndi ég koma hingað til þess að læra, þetta er svo svakalega fallegt umhverfi og notalegt. Þetta er s.s gistiheimilið hennar systur minnar ef að þið voruð ekki búin að kveikja á perunni. Our House.



This is just gorgeous! Sjáið fleiri myndir hér Our House facebook og endilega gerist fan á facebook. Vá hvað ég væri til í að gista hér ef ég væri úglendingur. Oh well back to work!

Friday, September 10, 2010

Rannsóknarlögreglan í Kringlunni


Ég var búin að lofa Ingunni að ég myndi skrifa um hana í næstu bloggfærslu en ég er eiginlega með of djúsí skúp til þess að geyma, ég vona að hún fyrirgefi mér og finnst kannski bara heiður að vera nefnd á nafn hérna.

Ég vildi svoldið ræða undalegt mál sem hefur verið í gangi seinastu mánuðina. Þannig er mál með vexti að ég sé eiginmann vinkonu minnar í kringlunni öðru hvoru og ætla alltaf að heilsa honum þegar ég tek eftir því að hann er með einhverri allt annari fjölskyldu, þá sný ég við í flýti og labba hratt í burtu... Gööövöööð þetta var ekkert hann... vandræðalegt... En ég get svo svarið það þessi maður er nákvæmlega eins og hann,  hvernig hann lítur út, klæðir sig og hagar sér þannig að ég fór að hugsa, er maðurinn kannski að lifa tvöföldu lífi og á bara einhverja aðra familíu útí bæ? sem gera ekkert annað en að hanga í Kringlunni? 

Nema hvað í dag sit ég á stjörnutorgi alein að éta vonda serranoinn minn, þá tek ég eftir því að hann situr þarna á næsta borði og viti menn með hinni fjölskyldunni OG ÞAU ERU AÐ FARA! Ég var ekki lengi að hugsa og brá á það ráð að ellta þau og ætlaði svo sannalega að confronta gaurinn.... en svo þegar ég kom nær þá tók ég eftir því að gaurinn er ekki NEITT eins og kallinn hennar vinkonu minnar, bara ekki baun....wtf :S en ég reyndi að taka mynd af honum í laumi til að sýna vinkonu minni tvífara eiginmanns hennar í fjarlægð, en náði bara blurry mynd af konunni hans og barni :S kann ekki alveg við að pósta þeirri mynd á bloggið :S

Btw ég held að maður verði nett brjálaður í hausnum að halda út blogg .....

Jiiiidúddamía!

Heyrðu! Nýja serían af America's next top model er byrjuð! En ég ætla ekki að horfa á nýja þáttinn strax, þar sem að það var líka að koma inn fyrsti þátturinn af Hellcats sem er eitthvað nýtt klappstýrudrama. Sýnt á CW sem hefur hingað til verið með fööölllt af skemmtilegum þáttum þannig að ég er spennt! Ókei bæ farin að horfá einn þátt fyrir vinnu ;D

Thursday, September 09, 2010

The night time is the right time, but the winter time is my favorite time


Ohhh það er að koma vetur og æjj hvað ég hlakka til. Það er ekkert yndislegra en að eiga kæró um yfir vetrartíman þannig að ég mæli með að all you single people reddi sér 1 stk kæró fyrir veturinn. Það er svo gott að hafa einhvern til að hlýja sér þegar maður kemur heim úr kuldanum. Ég tala ekki um jólin!

Ohhh mér hlakkar að hugsa um þetta! Jólin í fyrra voru yndisleg með mínum kæra. Ég sé okkur í hyllingum uppí sófa með heitt kakó og smákökurnar sem ég klúðraði en Sæli borðaði samt því að hann er yndi, að horfá einhverja jólamynd. Að velja jólatréð sem mér var svo hjartansmál að velja að ég læt hann þræða með mér allar jólatrésölurnar til að finna hið fullkomna feeeita jólatréð sem við svo fundum, að halda utan um mig þegar ég grét yfir því að jólatréð var eitthvað lélegt og drapst nokkrum dögum eftir að við keyptum það þrátt fyrir það að ég var mjög dugleg að vökva. Já og náttúrulega piparkökuhúsið sem við bökuðum og þá felldi ég aftur nokkur tár yfir því hvað mér fannst allt mikið klúður. Tók eiginlega svoldið dramakast á þetta en aðsjálfsögðu skildi vetrarkæróinn minn það.... svo endaði það þannig að við sprengdum húsið að jólum loknum, það var symbolic! .... eða kannski ekki okkur langaði bara að sprengja eitthvað.

Ohhh allt við veturinn er yndislegt.... eða þúst þar til 2.jan...

Crazy girlies

Vaknaði í morgun, burstaði á mér tennurnar og þreif á mér andlitið. Setti á mig grímuna, krullaði á mér hárið og fór í fötin sem ég hafði vandlega valið mér kvöldið áður, eyddi svo svolitlum tíma í að ákveða hvernig ég ætti að skarta mig upp. Var í svaka gellu módi þegar ég steig útum dyrnar.

Mætti svo í vinnuna, horfði á mig í speglinum og gagnrýndi hvern einasta hlut við sjálfan mig sem ég var að eyða tíma í í morgun...... Hvernig nennir fólk að vera stelpur?!


Wednesday, September 08, 2010

I'm back bitches.....

..... sem er frekar vandræðalegt þar sem enginn er að lesa bloggið mitt lengur, en you know what I don't give a rotturass!

Mig langaði að pústa svolítið út, tala um svolítið sem snertir mína hjartastrengi og spilar á þá eins og gítar mig langaði rosalega mikið að tala um.....







.... Jersey Shore.

Jersey Shore eru nýju uppáhalds þættirnir mínir í algeiminum! Þar fylgjumst við með 8 yndislega trashy fallegu ungu fólki sem gera ekkert annað en að tana, gymma, partía og slást.... ég skil ekki hvernig þessi blanda getur nokkurntíman klikkað!! Eru einhverjir til sem eru ekki að horfa á þetta?! Uppáhalds persónan mín er aaaauðvitað Snooks!




Snooki Snickers er alveg hreint yndisleg krútttrashbomba! Hún er alveg pínu ponsu lítil með túttur alveg úúútum allt! og auðvitað her signature snooki poof í hárinu. Hún er svoldið mikið grey og kom inní shore húsið í fyrsta þáttinn tilbúin að gera allt brjálað en var alltof full og trashy og ekki mjög vel liðin í húsinu, en hún baðst afsökunar og komst fljótt í náðina hjá öllum. Hún er svoldið óheppinn í ástum greyið og nær aldrei að fá sér neinn guido með sér heim af djamminu en henni er alveg sama á meðan hún getur fengið sér pickles.

Besta vinkona Snooki í húsinu er Jenny "JWOWW". JWOWW er awesome, hún er hávaxin með klikkaðan líkama og túttur útum allt, hún stundar ræktina fast og er líka með svaka vöðva, enginn vill messa við JWOWW enda er hún hingað til búin að lemja tvær manneskjur í húsinu, einn gaur meira að segja. Hún átti kærasta sem hún skildi eftir heima þegar hún fór í shore húsið en freistingarnar urðu of miklar fyrir hana og hún fór alveg í pínu ponsu sleik við Pauly D.

Pauly D er hot stuff, og Pauly D veit að hann er hot stuff en Pauly D er líka rosalega nice gaur. Hann verður sjaldan reiður og eiginlega gerir lítið annað en að picka upp tjikks á djamminu og forðast jarðsprengjur.

Mike "The Situation" Hvar byrjar maður!? Ég meina gaurinn kallar sig The Situation! Mike er með alltof stórt ego og er svoldið mikill douchebag en það er alltílæ því hann er fyndinn. Hann er alveg meistari í að losa sig við jarðsprengjur þegar hann óvart dregur þær með sér heim og hann er líka rosalega góður að henda stelpum út sem hann er búinn að lúlla hjá svo að þær lúlli ekki alla nóttina.

Vinny er ekki eins mikið hot stuff og hinir gaurarnir, hann er ekki eins tanaður og er pínu goofy. Hann er mömmustrákur og mér sýnist af previews úr seríu 2 að það verður smá chick fight í húsinu útaf honum, veit ekkert hvað það er.... ó já var líka að boinka systur The Situation.

Angelina er lítil bitch, hún var rekin úr húsinu í fyrstu seríu og enginn fattar afhverju hún er í annari seríu, hún er algjört drasl og já hún kallar sig the Kim Kardashian of Staten Island... en hún er samt fokk ljót og mikið drasl.

oooog svo eru síðustu tveir castmemberarnir og ég ætla bara að tala um þau saman þar sem þau eiga ekki skilið sér section af blogginu mínu...
Það eru Ron og Sammi "Sweetheart"

Sammi á að vera sætasta stelpan í húsinu, en mér finnst hún ekki sæt, eiginlega bara ansaleg og rosalega leiðinleg, hún segir aldrei neitt fyndið né gerir, hún eiginlega er bara alltaf að væla og rífast við Ron sem er kjæróinn hennar, þau byrjuðu saman í húsinu og urðu eitt stórt drama, hann er alltaf að halda framhjá henni, fara út að djamma og slefa upp í jarðsprengjur og fara svo heim til hennar að kúra, svo frétti hún það og fór að grenja og fór í fýlu útí alla nema hann. Þau eru drasl.

ohhh those crazy kids! Fist Pump fyrir Jersey Shore!!!




Wednesday, April 23, 2008

Tjáningarleysi

Já ætli ég fari ekki bara að blogga hérna aftur og verða mjööög dugleg, ég er nefninlega með einhverja svakalega tjáningaþörf en samt dettur mér sárla fátt í hug til að skrifa um ! Ég er ennþá alveg heavy svöl, er reyndar ekki búin að testa það með að byrja að horfa á Star Trek eins og ég sagði hér í fyrri bloggfærslu en reyndar hafa tvö önnur original Star Wars plaggöt bæst á veggin, s.s ég á original plaggöt af A New Hope, Empire Strikes Back og Return of the Jedi en er ennþá með svo mikið natural cool að ég hönda þetta alveg án þess að vera lúði.




Hvað er fleira að frétta, vá voðalítið ! Síðan ég keypti bílinn minn hef ég lítið annað verið að gera en að rúnta eins og a motherfucking crazy person, ég lifi á rúntinum með tónlistina alveg í fucking botni ! Á playlistanum í augnablikinu er Accept, Trouble, Candlemass, Cathedral, Motörhead og Type O Negative, djöfull er ég svöl vááá. Já heeey ég stend í flutningum einmitt núna, ógisslega awesome og þegar ég er búin að flytja þá ætla ég að bjóða stelpunum í innflutningspartý og það verður alveg wicked cool, ég vil ekki tala um smáatriðin því það átti að vera surprise en ég er samt eiginlega óvart búin að kjafta því í Hörpu og Sunnevu.... þannig að nema að ég kjafti því í Mæju þá verður hún bara surprised :D! Ætla að hafa þetta þema partý. Já annars bara, vinna föstudaginn þannig að ekkert djammstand en hver ætlar að vera á rassgatinu einhverstaðar útí skurð með mér á laugardaginn ? Can you say BLOTTO! ok ég er farin, ég er farin að verða leim og það má ekki gerast bæææææsís.. I mean bæsís!

Thursday, March 08, 2007

Ég er svöl

Merkilegt er það að alltaf þegar ég blogga þá hugsa ég djöfull er ég glötuð að blogga en samt alltaf þegar ég les gömul blogg þá hlæ ég oft upphátt af einhverju stupid sem ég segi en mér finnst það samt ekki fyndið þegar ég segi það. Ég er að hlusta á Fleetwood Mac.... nei það gerir mig ekki að nörda.... skoh í rauninni ætti ég að vera nördi því að ég er með risa starwars plaggat inní hjá mér, ég er alltaf í tölvunni og á endalaust margar leikjatölvur, uppáhalds myndin mín er revenge of the nerds og ég safna dvd en ég er með svo mikið natural cool í mér að ég kemst upp með þetta allt án þess að teljast nörd.

Kannski ætti ég að fara að læra línudans og byrja að horfa á Star Trek.. Ég hef heyrt að Mr Spock og Captain Kirk séu ansi sniðugir gaurar... ég held að natural coolið mitt getur höndlað það.

Anyhoo árshátíð skeljungs er á laugardag, það verður svo viðbjóður hvað verður gaman, allir á stöðinni minni mæta nema tveir og allir ætta að verða alveg blotto! Þannig að það verður stuuuuðððð :D Anyhoo ég er farin að runka mér yfir mistökum í Simpsons þáttum..... kúlið höndlar það

Wednesday, March 07, 2007

Ég er dugleg að blogga


Ég er alveg víst dugleg að blogga, það var bara eitthvað vesen með þessa síðu en allt er ok núna. Anyhoo í London á IMATS (international make up artist trade show) keypti ég mér fullt af geggjuðum augnhárum, alveg Silvia Night aughár og læti, ætla að láta litla ljósmyndarann minn hann Magga taka make up myndir fyrir mig og ætla að nota þessi geggjuðu augnhár mín, hefur einhver áhuga á að vera módel ?

hellúú



Í morgun var hringt í mig frá Eskimo models og beðið mig um að koma og farða fyrir myndatöku og ég sagði já alveg án þess að hika, þegar ég lagði á fattaði ég... æjj sjitt ég á að fara að vinna í Select í dag, en yndislegi yfirmaðurinn minn reddaði þessu fyrir mig :D Ég hef einusinni áður farðað fyrir Eskimo models en núna gekk þetta bara rosalega hratt fyrir sig og það var bara gaman. Er reyndar dauðþreytt og er að fara að vinna á morgun, og kannski að fara í annað förðunarverkefni á fimmtudaginn, svo vinna föstudaginn og svo árshátíð Skeljungs á laugardaginn !! Jibbí, það verður gggggggggeeeðveikt gaman :D

Anyhoo veriði dugleg að commenta og svona, segiði mér hvernig blogg þið viljið fá frá mér :D

Monday, December 04, 2006

Úff



Æjj vá bara jólin að koma, hvar er jólastuðið?! Ég eyddi öllu laugardagskvöldinu í það að taka til og skreyta og svo er ég búin að vera að baka og skreyta frammi og nei bara ekkert stuð :S skil þetta ekki!! Reyndar held ég að þetta sé mikið útaf rosalegu stressi útaf skólanum! Það er svo mikið að gera, ég er í prófum og er að reyna að klára þessa vinnubók jeez hvað ég er ekki að fýla þessa vinnubók!! Myndardagarnir eru búnir, ætla að vona að mér gekk vel, þrátt fyrir brjálað stress, ég var á tímabili næstum því farin að gráta og ældi smá uppí mig útaf stressi! Guð !! Bara ef að ég fell í skólanum eru bara allir draumarnir brotnir og 310 þúsund krónur farnar í vaskin, gaman gaman! Allavega í dag fór ég í ísland í bítið, mætti klukkan 6:30 geggjað stuð!! Fylgdist með sminkinu, örugglega geðveikt gaman að vera sminka þarna! Á morgun er gestakennari um markaðsetningu og svo miðvikudaginn er æfing fyrir próf, fimmtudaginn er próf í brúðarförðun og skil á vinnubók, mánudaginn er æfing fyrir próf og þriðjudaginn er próf í kvöldförðun, miðvikudaginn æfing fyrir próf, fimmtudaginn próf, frjálst val! Svo eru bara litlu jólin og útskrift!

Allavega ég er alveg búin að losa mig við vírusinn og búin að setja aftur upp netið í tölvunni minni, nú er ég bara að fara að installa office pakkanum og byrja að pikka inn einhverjar glósur, btw var að fá prentara, geggjað ánægð með það :D:D

Thursday, November 09, 2006

Hey fólk!

Hey ég vil fá alla jólagjafa óskalista hjá öllum sem fyrst, svo að ég get pantað á netinu ef að það er eikkað sem ég ætla að panta og því að ég ætla að vera helst búin með allt frekar fljótlega vegna þess að ég verð svo busy í skólanum alveg til 22. des ... þannig að allir senda mér e mail!

Tuesday, November 07, 2006

OMG BORAT







OMG ég fór á Borat í gær og í allri alvöru held ég að þetta hafi verið skemmtilegasta mynd sem að ég hef séð.!!

ok allir á Borat bara ekki seinna en núna! Anyhoo þá var ég að koma úr skólanum, það var ágætt, var að farða Beddu í svart hvíta förðun, sem er s.s förðun sem lítur vel út í svart/hvítri myndatöku, það var flott hjá mér, ég elska mig, nei ég er að djóka
eða þ.e.a.s ég elska mig alveg ágætlega en ég var bara að djóka með að minnast á það... hmmm... ég var að skera niður lauk og gúrku áðan og svo setti ég það ofan í kotasælu og borðaði á hrökkbrauði, hljómar ógeðslega en er í rauninni gott bæææ

Monday, October 30, 2006

hææææ



Hææ ég er í geggjað góðu skapi en er samt á túr, skrítið :D Er að hlusta á tónlist og hugsa um allt skemmtilega fólkið í lífi mínu :D það er svo mikið af því, ég elska ykkur öll

Friday, October 27, 2006

Count it !

Jesssörrrííííbbbbooooobbb

Það er fkn vont veður sem þýðir bara eitt, ég er komin í jólastuð! Ég er búin að vera að reyna að berjast við það, það er glæpsamlegt að vera komin í stuð svona snemma því að þá gerist bara eitt, þú verður dottinn úr stuði þegar nær dregur, ég held að það sé svona kvóti, þú mátt bara vera í stuði í ákveðið marga daga and then you're done ! Ég hlakka til þegar við skreitum, hlakka til að fara að baka piparkökur, hlakka til að kaupa dagatalakerti og kveikja á því og gleyma að slökkva á því þannig að það brennir alltof marga daga, hlakka til þegar maður setur upp aðventukransinn og kveikir á aðventukertunum, þegar við kaupum jólatréið og finnum jólatré á fysta staðnum sem að við förum á nema að mér finnst það svo ótrúlegt að ég neyði alla til að fara á allavega 2 aðrar jólatréasölur, ég hlakka til þegar maður er komin með uppí kok á öllum jólalögunum, ég hlakka til þegar við finnum ekki Mahaliu Jackson diskinn á þorláksmessu því að Svaný hefur sett hann einhverstaðar á góðan stað og kennir mömmu um, ég hlakka til þegar allir fara að rífast á þorláksmessu og verða pirraðir nema ég því að ég er að reyna að hafa jólaskap og svo hlakkar mér auðvitað til að vera plötuð í það að skræla kartöflur á aðfangadag í fínu fötunum mínum og að éta jólamatinn, opna pakka og leika sér með allt dótið sem að maður fékk og borða nammi eftir að gestirnir eru farnir, eða núna, horfa á allar dvd myndirnar :p

Djö nú er ég náttúrulega í miklu meira jólastuði :(